Jólin
Konan á pósthúsinu svaraði mér með íhíhíhíhí skríkji Ásbjarnar í gær, Þorláksmessu, þegar ég spurði hvort hún héldi að jólakortin næðu í hús fyrir jól. Þú getur alveg gleymt því, sagði hún. Svo mörg voru þau orð. Held að hún hafi talið niður jólin (lokunartíma pósthússins) í huganum. Þess má geta að sum jólakort hverfast í áramótakort þar sem framkallarinn náði ekki að framkalla í tíma. Verður maður ekki að senda mynd af guttanum?
Skrítinn þessi siður með að ná sér í tré og færa inn í hús. Náttúran svona innandyra - í 13 daga ættleiðingu. Hófí vinkona mín gaf okkur tré og valdi sjálf. Yfir tveggja metra hátt tré sem stendur nú þröngt á milli sjónvarpsins og stofuborðsins. Nokkrum númerum of stórt fyrir stofuna enda virkar það pínulítið vandræðalegt. Eins og það átti sig líka á skrítnum aðstæðunum. Á reyndar eftir að skreyta tréð, hressist líklega við það.
Las stutt viðtal í Fréttablaðinu við náunga sem er Votta Jehóvi. Vottar halda ekki jól. Sagði að hvergi í Biblíunni stæði nokkur stafur um það að Jesú hefði fæðst þann 24. desember né segði bókin að halda ætti þennan dag hátíðlegan. Þess vegna héldu Vottar – sem að öðru leyti trúa á Jesú og biblíuna held ég – ekki jól. Veit ekki. Kommon. Obbobbob eitthvað. Hljómar eins og langlíft fýlukast. Varla svo mikil sök að jólunum. Eru Vottar kannski bara fýlupúkar?
Þó ekki ég! Gleðileg jól.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home