Um dag og veg i lifi Storks

laugardagur, janúar 14

Kokteill daganna

Mikið hrikalega er Little Trip To Heaven lagið með Mugison gott. Himneskt kannski bara. Gamalt lag með Tom Waits sem ég man ekki eftir en hef líklega þó heyrt áður – enda átti Bjöggi vinur minn alla diskana. Sagði okkur góða sögu af því þegar hann hitti Baltasar á Kaffibarnum eftir að hafa ný-heyrt að hann ætlaði að gera mynd sem héti LTTH. Bjöggi hafði þá sagt Baltasar að hann yrði bara að nota lag með sama titli eftir Tom Waits. Kom á daginn að þetta var uppáhaldslag Balta og hugmyndinni hafði þegar skotið rótum. Samt. Bjöggi á sinn þátt í þessu. Lúkas litli er líka hrifinn af laginu. Var allur á iði þar til ég setti lagið undir geislann. Lagði sig þá rólega í fang föðurs síns og hlustaði með. Brosti. “Thanking my lucky stars that I found you”.

Í gær kl. 9 um morgunn, rétt eftir að ég var lagður af stað í vinnu, bönkuðu iðnaðarmenn á útidyrnar. Buðu Ingibjörgu eitt stykki “ljósleiðara”! Hvorki meira né minna. Hún þáði það, bauð þeim inn og þeir settu ljósleiðara í íbúðina. Inn í fataskápinn! Ekki veit ég hver bað þá um að koma, til hvers þessi ljósleiðari er eða hvað í anskd hann er að gera í fataskápnum okkar. En hann er kominn og ég bíð nú spenntur eftir því að hann fari að sinna sínu hlutverki.

Annars hefur hitinn verið bærilegur þessa vikuna. Til staðar en ekki óbærilegur. Sá litli er þó lítill – í sér, hóstar og sígur nef. Hálfómögulegur greyið. Foreldrarnir hálfómögulegir til stuðnings. Ástand.

Stefnir í endurfundi grunnskólans við Lækinn. Á fundi undirbúningsnefndar á hafnfirska Súfistanum á fimmtudag, var það rifjað upp að hópurinn var nú kannski ekki sá samheldnasti – og ekki víst að allir væru til í að mæta. Man að krakkarnir voru annað hvort ofan á eða undir þarna í denn. Svolítið þannig. Og stundum urðu þeir sem voru ofan á - undir á endanum. Stundum þannig. En hlakka til fundar með fólkinu sem maður hefur gleymt, ekki séð lengi eða jafnvel aldrei þekkt.

Laugardagur og birtan fyrir utan gluggann vegur fullkomlega upp á móti janúar skammdeginu - í hressandi kokteil af hvítum snjó og batnandi heilsu.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hitti Gussa á laugard. Hann kannaðist ekkert við að hafa verið í Lækjarskóla.

Kv.

G.

2:32 e.h.

 
Blogger BJ said...

Ciao Regazzi !!

Elsku upplærið mitt, þú hlustaðir mjög oft á diskinn sem þetta lag er á, eini TW diskur sem þú vildir sjá... Closing time. Þannig ef jeg mætti giska hefurðu hlustaðir svona ca. 30 sinnum á það á Laugarvegsárunum okkar....

Annars kannast jeg ekkert við að hafa verið boðinn í neitt rejúnjon..

7:37 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Er ekki bara málið að halda svona gigg á ekki of stórum stað og helst ekki með stólum þannig að lýðurinn geti eigi rottað sér saman í gamla hópaskipan til að forðast óþarfa samskipti við náungann (ala Islandia) :-).

Standadi gleðskapur skilar bestu mingli. Annars hefur hann bakkus gamli ákveðið lag á að láta fólk ræða saman.

Hilzen,
Raggi

7:41 e.h.

 
Blogger Darri said...

Ma, ciao tutti raggazzi!

* Við vorum öll bara aukaleikarar í þínu lífi Stjáni minn. Maður reyndi bara að fylgja eftir öllum sögunum. En það var í den auðvitað :)

Góðan bata í álfunni svörtu.

* Gussi kóóóngur :)

* Alveg rétt mar! Man vel eftir Closing time. Ákvað að einbeita mér vel að einum disk frekar en að reyna við þá alla 30. Sumir segja að Mugison sé að rústa þeim gamla í þessu lagi...? Skal ekki segja sko.

* Góð hugmynd Raggi! Gæti líka komið í veg fyrir ýmis handalögmál. Sem eru reyndar hálfgerð lögmál á Lækjó-endurfundum.


Allt á frumstigi reyndar ennþá en úr því að þið eruð allir hérna þá er þetta 3. mars. Nánari dagskrá síðar.

8:34 e.h.

 
Blogger BJ said...

íííííiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiÍÍÍÍÍÍÍÍiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiihíhíhíh´hiíhíhíhíhíhHHíhÍHHHHíh´´hhi roooooooooosa rústa.

1:26 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home