Gunni
Gunni vinur minn er stundum alveg eins og ég – eins og hann. Höfum þekkst lengi og vorum sambýlingar í heil þrjú ár. Og eins og góðum félögum sæmir, sem eyða miklum tíma saman, höfum við orðið samdauna um margt held ég.
Þegar best hefur látið - flugu hugsanir milli hausa í hálf- og ókveðnum vísum. Man vel þegar Bjöggi flutti inn til okkar og skildi ekki þessi sérstöku samskipti okkar. Sat á milli okkar í bleika sófanum, hlustaði á okkur ropa upp hmm, hey, öhö og hehe... horfandi á okkur til skiptis eins og hann væri að horfa á tennisleik sem fer í 5 sett – þangað til hann loks stundi upp hálfpirraður, hvað eruði eiginlega að tala um!? Var nokkuð augljóst héldum við.
Smátt og smátt tókum við svo upp á því að klæða okkur í sömu fötin. Tómar tilviljanir (án gríns) breyttu brosum í undrunarsvip þegar við sáum nýjustu garma hvors annars. Hey, þú...en ég... var einmitt að kaupa svona jakka! Eitt sinn keyptum við reyndar alveg eins buxur í sömu búðarferð. Keyptum svo blómvönd (handa Ingu minnir mig – afmæli?) og gengum um Kringluna. Fannst þá reyndar nóg um, minnir mig.
Laugavegs – númer 55 – tískan stóð þó yfirleitt í stað hjá okkur og skeytti lítið um straumana sem brjóta árstíðabundið á landsteinum. Græn úlpa úr Spútnik, húfa úr Illgresi í bland við annað úr verslunum götunnar. Nokkuð beisikk. Eitt sinn vorum við þríeykið, Gunni og Bjöggi að koma af Súfistanum. Á leið heim laumaði Bjöggi sér skyndilega yfir götuna og hóf að hálf-hlaupa eins og brjálæðingur án þess að mæla orð. Þegar við gengum svo í hlað stóð hann sperrtur með myndavél og smellti af glottandi. Vorum við þá eins frá toppi og niður úr. Frá húfu að skóm. Án þess að fatta það.
Við Ingibjörg hittum Gunna á Súfistanum um daginn. Einsi frændi varð þrítugur daginn eftir og ég átti eftir að kaupa gjöf handa honum. Hafði þó skimað búðina og svona eiginlega búinn að ákveða mig. Eftir kaffið sagði ég Gunna frá gjafaleitinni og hann stakk upp á bók fyrir Einsa. Moby Dick. Þögn. Gunni stal orðunum af vörum mínum. Hrifsaði til sín hugmyndinni: Moby Dick! Af öllum bókum Máls og menningar... Einmitt.
Sjaldséðir hvítir hvalir.

3 Comments:
íhíhíhíhíhíhíh´híhíhíhíh
3:57 e.h.
Oooooohohohohohohohohoho
7:45 e.h.
Djös fagmenn erum við!
G.
4:51 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home