Heitin
Fyrsti janúar. Ár að baki, annað eins framundan.
Setti Lúsa í vagninn áðan og gekk um hverfið, Teigana. Gekk Hofið, Gullið og Silfrið og þurfti ekki meira til. Svifið inn í draumalandið. Skorðaði loks vagninn fyrir framan eldhúsgluggann og tók labbitúr í 10 11.
Á leið í leit að rjóma og whipees hugsaði ég upphátt svo varirnar bærðust í takt við létta goluna. Rabbaði við sjálfan mig um markmiðin í nýju ártali.
Sum eru ný - önnur staðfesti ég í huganum. Ég ákvað að elta hugmyndirnar, fylgja þeim yfir á næsta skref. Fá þær líka fleiri.
Önnur markmið persónulegri. Látlausari og heimilislegri. Ekki síður mikilvæg þó.
Stefnumarkmið líka. Stefnumótun. Fýsísk og huglæg. Spurningin um að fleyta landsteinana. Kannski.
Enn önnur markmiðin snúast um meira og minna. Meiri lestur, minna sjónvarp, meira hugs - minni vinna? Um aukna orðaleikfimi - teygjur til gyðjunnar. Um eigin takmarkanir og rof á þeim.
Markmið takmarkalaus.
Gleðilegt ár!

3 Comments:
hæ darri! datt inn á bloggið þitt í fyrsta skipti í langan tíma, ákvað að ég yrði að kvitta fyrir komuna! svo áttirðu líka afmæli um daginn og ég átti alltaf eftir að segja: TIL HAMINGJU! vona að þú hafir átt góðan dag og fengið fullt af pökkum :)
knúsið,
lóa
12:04 e.h.
Þú verður háfleygari með hverju árinu sem líður!
Gleðilegt nýtt ár og kertið sem bættist ofan á tertuna um daginn.
-Kári
11:20 e.h.
Hæ Spóa! Takk fyrir kveðjuna, átti fínan dag já :) Óvænt og skemmtilegt að heyra í þér.
Því hærra sem maður flýgur, því betra er útsýnið Kári ;)
Hrikalega gaman að heyra frá ykkur báðum! Velkomin aftur á Storkinn.
- darri
ps. Fyndið, að því meira sem maður reynir að gleyma - því fleiri muna.
11:36 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home