Um dag og veg i lifi Storks

laugardagur, mars 25

Ópraktískur

Ég get verið alveg rosalega ópraktískur stundum. Þ.e. þegar kemur að praktískum hlutum. Hitti strákinn í risinu í dag og við fórum að ræða um praktíska hluti. Töluðum um að það þyrfti kannski að skipta um rafmagnstöflu því sameignin væri hugsanlega á einum reikningi nema það hefði verið búið að bæta við stoð í þvottahúsinu, eitthvað þannig... Jájá fínt maður. Og svo verðum við að mála þakið í sumar, hélt hann áfram. Þakið? Jájá þú meinar hváði ég. Hafði ekkert spáð í ástand þaksins verð ég að viðurkenna. Held það sé rautt. Ákváðum að hóa í húsfund bráðum. Skildi það.

Ég veit s.s. voðalega lítið um svona praktíska hluti. Hluti sem allir virðast þekkja út og inn – hlutir sem maður á að vita. Oft fann ég fyrir ópraktíkinni í sjálfum mér þegar við vorum í leit að íbúð fyrir um 1 og hálfu ári síðan. Eigendur leiddu okkur um vistarverur, fóru samviskulega með söluræðuna og útskýrðu hitt og þetta. Og það var þá sem ég skildi ekki neitt. Þegar það byrjaði að tala um praktísku hlutina. Þetta átti t.d. við um raflagnir, skólplagnir, sprungu- og steypuviðgerðir, almennt viðhald og þess háttar.

Ég veit t.d. ekkert hvað barki fyrir þurrkara er og hver munurinn á barkalausri vél og með barka, er. Skilst þó að maður þurfi að leiða eitthvað út um gluggann. Þá heyrði ég líka nýtt hugtak í fyrsta skipti: Lekaleiðari. Vissi ekkert hvað það var en heyrðist á máli viðkomandi að það hefði eitthvað með rafmagn og rafmagnstöfluna að gera. Hvort það ylli leka eða leiddi til einhvers sérstaks vissi ég ekki.

Í öllum þessum samtölum játaði ég þó ekki fávisku mína jafn frjálslega og hér. Heldur setti upp spekingssvip, pírði augun og kinkaði kolli í takt við útskýringar viðkomandi og reyndi að ná samhenginu áður en upp um mig kæmist. Laumaði inn einni og einni spurningu þegar mér fannst ég vera öruggur. Þegar ég vissi eitthvað.

O jæja, þetta var nú kannski ekki svona slæmt en ég stóð mig nú samt að því að vita of lítið um praktíska hluti – og geri enn. Má eiginlega ekki við því. Lífið er fyrir löng orðið praktískt og tími til að vita meira. Verða praktískur.


Jafnvel þó um sé að ræða alveg leka-leiðinlega hluti.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Lekastraumsrofinn

Eitt helsta öryggistæki rafkerfisins er lekastraumsrofinn. Ef útleiðsla verður í raflögn, t.d. vegna bilunar í jarðtengdu tæki, á rofinn að slá út og rjúfa allan straum. Lekastraumsrofi kemur ekki að tilætluðum notum nema raflögnin sé jarðtengd og kanna þarf reglulega hvort hann virki með því að ýta á prófhnappinn.


Það var nú ekki flóknara enn það.

G.

11:19 f.h.

 
Blogger Darri said...

tssss.. ekki var þetta flókið :)

Fínt að eiga Hauk(amenn) í horni.

10:31 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home