Um dag og veg i lifi Storks

föstudagur, febrúar 24

Ákvörðun

Ákvörðun um eitt - eða annað. 1. mars nálgast eins og óð fluga á bjartri glerrúðu og heimtar frá manni. Ákvörðun.

Og ég í hugsunarferli, veit ekki í hvorn fótinn eigi að stíga - hvort eigi yfirleitt að stíga. Skrefið. Held samt að það sé kominn tími á það. Smá rölt um víðar lendur heims og fræða.

Bara ef tækifærin væru fá og lokuð ofan ofurlítilli krukku sem auðvelt væri að opna með lausum snúningi - réttsælis.

Þó ekki kvörtunarefni í sjálfu sér að tækifæri liggi í haug, þvert um sjálf sig líkt og í risastórri súpuskál. Ilmandi, rjúkandi. Og ég þarf bara að taka skeið í hönd, dýfa í og fanga það rétta.

Væri auðvelt ef það væri ekki líka spurning um það hvort nota eigi vinstri eða hægri höndina.

Endalausar spurningar, fleiri svör. En vantar bara eitt.

Bara eitt.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

fylgdu hjartanu í bland við hæfilega skynsemi, taktu ákvörðun og stattu við hana, þú getur verið 100% viss um að þér mun ekki þykja alltaf jafn skemmtilegt að starfa við það sem þú velur þér ALLTAF en lífið tekur stundum óvæntar stefnur sem ómögulegt er að sjá fyrir svo bara la gó
koss
mamma

2:51 e.h.

 
Blogger Darri said...

takk mamma :)

3:12 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Góð ráð frá Storkamömmu sem allir ættu að fylgja.
Góða helgi.
-Kári

9:00 e.h.

 
Blogger Darri said...

Já, storkamamma veit hvað hún syngur.

Góða helgi Kári minn - hvar ert þú annars í heiminum staddur? Heyrumst fljótlega.

dj

9:58 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Ertu að spá í nýtt bindi? Úff, ég mun aldrei gleyma.........:)

G.

8:21 e.h.

 
Blogger Darri said...

Ekki bindi núna nei - en álíka mikilvæg ákvörðun samt sem áður ! : )

12:09 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home