Endurfundir
Fór á endurfundi við gamla skólafélaga úr grunnskóla um daginn. Hópurinn hefur hist tvisvar áður – ári eftir útskrift og fyrir sex árum síðan. Í fyrra skiptið flugu hróp, köll og hnífapör um loftið, þvert yfir salinn og milli borða. Vel undirbúinn hátíðarsöngur stelpnanna yfirgnæfður, af stuttu færi, með púi og unglingslegum augngotum. Gussi fékk held ég einn á snúðinn.
Í annað skiptið var þátttakan dræm og hópnum flykkt úr sal í heimahús. Samt stuð held ég. Mætti ekki.
Nú var gerð heiðarleg þriðja tilraun til góðra endurfunda og Bogi stóð í stafni, stýrði skipi og áhöfn á Fjörukrána. Sannir víkingar og meyjar mætt til að kneyfa ölið og eta kjötið. Satt að segja vissi ég ekki alveg á hverju ég átti von. Árgangurinn var á sínum tíma hlaðinn orku og spennu sem stundum fékk útrás í einhverju misjöfnu – eða á einhverjum. Versti árgangur ever, sagði yfirkennarinn víst.
Á videoupptöku sem sýnd var í byrjun kvöldsins spurði Stulli nokkra úr árganginum hvað væri minnistæðast frá því í þá daga. Ég velti spurningunni fyrir mér og hverju ég hefði svarað. Draugalegar skíðaferðir, fíflalæti í skólaútvarpsþætti og fótbolti fastur út í Læk var eitthvað sem mér datt í hug en líka annað. Man líka vel eftir kennara með taugaáfall, öðrum grátandi og skólastjóra tómatrauðan af reiði. Man þegar Haffi stærðfræðikennari tók Gústa og lyfti yfir höfuð sér áður en hann henti honum út úr tíma. Man líka eftir einelti, fjöl-elti og almennum stælum, rembingi og andstyggð. Tvístur í annars einsleitum hópi krakka. Kannski eins og gengur og gerist.
Spurði einn strák sem ávallt stóð utan hópa um hans hagi og hug til þessa alls; kvöldsins, endurfundanna – skólafélaganna. Hann trúði mér fyrir því að hann hefði í fyrstu ekki vitað hvort hann ætti að mæta. En sagði mér líka að allir þeir sem höfðu lagt hann í einelti í skóla hefðu á einum og öðrum tíma beðið hann afsökunar. Og hann hefði ákveðið að láta þar við sitja. Kvaðið gremjuna og tekið við beiðninni. Svona til að halda sönsum. Gott hjá honum.
Og þetta var gott kvöld. Eiginlega bara frábært. Og ef eitthvað var eftir af erjum æskuára hurfu þær eins og hvíta froðan í bjórglösunum.
Með fyrsta sopanum.

2 Comments:
Vantaði þó Þungarviktar krullurisa í þennan hóp. Ásamt jú auðvitað trúar ofstækisfyrrum drykkjumönnum o.fl. o.fl....
Annars hefði jeg verið til í að mæta... Fær maður annars ekkert að sjá fleiri myndir af þessu eða vídjó. Hvernig er það mitt kæra upplæri...
5:01 e.h.
Enda sááárt saknað krullirisi.
Raggi stóð þó vaktina fyrir ykkar klíku með prýði!
Hvað heldurðu að ég hafi séð um tæknihliðina á partínu mar. Engar myndir hér að fá.
6:02 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home