Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, febrúar 7

6 orða skáldsagan

Fréttablaðið hefur verið með úttekt á Íslensku skáldsögunni undanfarna sunnudaga, spurt þar rithöfunda um tilvist bóka og kreppu þeirra. Og fleira. Í framhjáhlaupi eru rithöfundarnir beðnir um að feta í fótspor Ernest Hemingway sem skrifaði eitt sinn sex orða skáldsögu. Sögu sem hann taldi víst seinna vera eitt af sínum bestu verkum. Skáldsagan stutta hljómaði svona:

Baby shoes. For sale. Never used.

Ekki nein barnsspor að feta í enda vel samið. 6 orð sem segja heila sögu, eða allt að því. Orð sem skilja eftir rými til að hugsa lengra og hugmyndaflugið er málað fyrir allt litrófið.

Ég hef lesið öll viðtölin en þetta með sex orða skáldsöguna sat helst í mér. Frábær hugmynd í rauninni. Ég er meira að segja búinn að prófa mig áfram og komist að því að þetta er snúið, ekkert gefið hér. Hættan er sú að semja ljóð í stað skáldsögu, kasta fram heimspekipælingu eða segja frá því hvað sagan var um – en ekki segja söguna um leið og hún gerist. Og svo þarf hún auðvitað að vera 6 orð. Ekki fimm, ekki 7.

Allavega. Ef einhver er ennþá að rata hingað inn þá skora ég á hann – eða hana, að skilja eftir í kommenti, sína sex orða skáldsögu.

Fyrsta færsla (og kannski sú eina?) að lokum:



Líf hans var tíðindalaust með öllu


16 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Endastöð hennar var hans upphaf, fæðingardeildin

11:20 e.h.

 
Blogger Darri said...

Góður

12:11 f.h.

 
Blogger BJ said...

Darri át ávallt fasana í hádegismat.

Að loknu upphafi sögunnar, hefst endirinn.

2:54 e.h.

 
Blogger Darri said...

Íhíhíhí.

Sú seinni meira speki en saga - eða hvað?

2:59 e.h.

 
Blogger BJ said...

Jamm líklegast... Svona
'Í upphafi skyldi endinn skoða'

4:18 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Hann var þvagbrenndur langt frameftir aldri.

11:01 f.h.

 
Blogger Darri said...

Frábært!

Hér er önnur:

Lífið var framundan þegar því lauk.

11:03 f.h.

 
Blogger BJ said...

* Leðurlyktin lagði um allan líkama Bjergvehns.

* Enginn vissi afhverju Darri heimtaði ávallt 6 orð !

11:55 f.h.

 
Blogger Darri said...

Nettur. Sú fyrri hefði jafnvel með smá breytingu getað verið titillinn á sögu um Byrgið:

Leðurlyktina lagði um lífsþreyttan Guðmund Byrgis.


Sú seinni roooosa góð - en 8 orð kallinn minn.

2:00 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Brundið rann. Bóndinn fann. Blátt bann.

12:03 f.h.

 
Blogger Darri said...

Glæsilegt :) Steinliggur sem saga.

Hér er ein:

Skotið reið af og sálin dó.

... og önnur:

Líf hans hlaut ekki lof gagnrýnenda.

2:26 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

sex orða leikur - kjúklingurinn er bleikur.

BJJ

10:25 f.h.

 
Blogger Darri said...

Björgvin hét hann. Hver var hann?

9:44 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Goðsögn sem engin þekkti í raun

2:50 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Sótti bolta, enda hjólið hans bilað.

1:41 e.h.

 
Blogger Darri said...

Góður anonymus.

Sólin skín ekki í kjallara tilverunnar.

12:31 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home