3 ljósaperur
Fór á Súfistann í dag. Stakk af frá fjölskyldu og skylduverkum í einn og hálfan tíma. Skipti um þrjár ljósaperur áður en ég lagði af stað með hreina samvisku.
Tók með mér bók, blokk og penna. Las og skrifaði og sötraði. Sá engan, hitti engan, ekkert nýtt, engar fréttir.
Átti samt góða stund, einn í eigin landhelgi. Langaði ekki einu sinni í kaffið en lét mig hafa það - með ábót. Allt fyrir einkaflugið. Flaug nokkra hringi í kringum höfuðið á sjálfum mér með augun fest á hvítar síður, sumum með orðum, öðrum án.
Gripinn í landhelgi líklega.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home