Bylgjan
Útvarp í beinni er líklega eitt það leiðinlegasta sem til er. Þ.e. útvarp í beinni sjónvarpsútsendingu. Bylgjan átti afmæli um daginn og sýndi útvarp í beinu sjónvarpi alla helgina. Ekki góð hugmynd. Að horfa á útvarpsmann stappa fæti yfir John Elton lagi milli þess sem hann segir hvað klukkan er og kynnir næsta lag. Ekki málið.
Bylgjan átti s.s. afmæli um daginn og hefur verið dugleg að auglýsa að hún sé í fararbroddi. Stöð sem var brautryðjandi og voða mikilvæg. Og hún var það líka. Sú fyrsta frjálsa – sem stuðaði íhaldssemi og afturhald. Útvarp á útrás. Pump up the volume.
Nýjustu lögunum með Phil Collins, Elton John, Bruce Hornsby og Kenny G var þrumað út í loftið og fólkið dillaði sér. Allir hlustuðu á Bylgjuna og slógu taktinn Og síðan hefur ekkert breyst. ,,Allir” hlusta á Bylgjuna og ennþá spilar hún sömu lögin.
Og því kannski ekkert svo í fararbroddi lengur. Status quo svolítið. Ekkert rokk, ekkert ról. Aldrei. Ever.
Ekkert öldurót. Bara ein bylgja.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home