Um dag og veg i lifi Storks

sunnudagur, september 24

Whattehell?

Sá lítið brot af nýjum RAUNVERULEIKAÞÆTTI áðan. Einhver kokkaþáttur, Hells´ kitchen. Aðalgæinn ropar svívirðingunum yfir þátttakendur eins og um mestu aumingja heljar sé að ræða sem ekkert ágætt eigi skilið.

Náði þessu ekki alveg.

Reikna með að verðlaunin séu, fyrir þann sem eftir stendur í lokin, að fá vinnu hjá þessum gæja. Sem er þá bara frábært, eða hvað? Vei. Heyrðu, sorrý að ég kallaði þig feitan aumingja og lúða. Það var bara út af þú veist ... þú veist.

Ég veit ekki alveg.

Reyndar voru keppendur kvöldsins kannski ekki alveg frábitnir því að bjóða yfir sig óskaparbölsótin, eða í það minnsta undrunarsvip. Einn sagðist, eftir svívirðingar, að hefði hann ekki skrifað undir samning um að hann mætti ekki berja neinn í þættinum – að þá sko, mundi hann bara berja hann. Önnur var ánægð með hafa komið á óvart. Sagði að hinir keppendurnir hefðu talið sig heimska og lélegan kokk en hún hefði sko sýnt þeim. Hún væri kannski heimsk en hún kynni sko að elda.

Jebb. Eða til heljar hér um bil.




(Reyndu aaaaftur. Ég bæði sé og veit og skil.)

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þú bara Verða fara skrifa meira...


bj

12:31 f.h.

 
Blogger Darri said...

Tsss.. ved sku ikk. Eitthvað djúpt á því.

10:35 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

iggggodt man

9:12 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home