Um dag og veg i lifi Storks

föstudagur, september 15

Rockstar súpernóg

Litla tröllabarnið með bleika varalitinn og týndu röddina sigraði á endanum. Eða í upphafi jafnvel. Náði loks að “opna hálsinn” og gólaði eins og fílsungi alla leið upp á sigurpall. Sigraði líklega á undarlegheitunum. Magni var góður, kom á óvart og það var hans kostur. Fór fram úr væntingum allra og sýndi óþekkta hlið. SveitaballaFMbandið hans líklega eins og gömul þynnkuminning núna. Smá bömmer jafnvel. Þó ekki. Með báða fætur á jörðu snýr hann heim í Skerjafjörðinn og hljómsveitin er víst að læra á nýju lögin og rokkið. En þrátt fyrir að Magni sé góður gaur og skemmtanagildi þáttarins alveg ágætt, þá var ég eiginlega kominn með nóg. Ég held ég hefði ekki haldið út aðra viku af KFC kallinum sem flækist um allan bæ með Kentucky í poka fyrir fólk. Ágætt dæmi um slappa hugmynd sem varð verri því oftar sem henni var (sjón)varpað fram – og farin að verka öfugt. Fékk því pínulítið súpernóg.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home