Dagarnir daga uppi á endanum.
Taka eitt loka sundtak í kaffidreggjum síðasta bollans, leysast með síðasta verki dagsins, e-mailast út í buskann. Þurrkast upp með ryki götunnar, hverfa sjónum með sólarlaginu. Skransa með bílhjólunum, skella aftur með hurðinni. Hitna og malla með kvöldmatnum, glansa í leirtauinu. Hvílast í sófanum, speglast í sjónvarpsskerminum.
Daga uppi og týnast. Út í tómið, þögnina. Við þó saman. Klukkur heimsins telja niður. Nóttin er komin.
Hefjast á ný með vinalegri kveðju frá rimlarúmi.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home