Um dag og veg i lifi Storks

mánudagur, janúar 12

Glerhús

Ég að skrifa hér.

Finnst ég stundum vera að hripa allt þetta niður í glerhúsi með dökku gleri. Ég með andlitið klesst við rúðuna að reyna að sjá inn, þú fyrir innan í makindum og horfa á mig brölta þetta í garðinum.

Sé svo við og við glefsur og brot í gegnum glufur á húsinu, sem annars er nokkuð rammgert. Sé þig þá horfa á móti, beint í augun ýmist með bros eða skeifu á andlitinu.

Veit ekki alveg af hverju ég er svo sem að reyna að góna þetta inn um myrka gluggana og veit svo sem heldur ekki af hverju ég er að væflast þetta í garði nágrannans. En held því samt eitthvað áfram held ég á meðan ég greini einn og einn húsráðanda í makindum í sófanum með bros á vör... já eða skeifu.

En kasti ég fyrsta steininum þá brotnar ein rúðan og ég get séð enn betur inn fyrir og án erfiðleika. Kannski þó bara auðveldara að banka upp á og fara inn um aðaldyrnar?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home