Í dag
Púff. Þessi dagur. Nóg að gera dagur. Fínn dagur.
Skrapp í hádeginu. Heyrði X-ið spila tvö Pixies lög í röð. Var mjög sáttur við það. Er farinn að hlakka mjög til tónleikanna í maí. Reyndar frekar ósáttur við það að fyrstu tónleikar Pixies í Evrópu síðan fyrir 1992 skuli verða haldnir í leikfimisal Fimleikafélagsins í Hafnarfirði en hvað getur maður gert? Dúðað sig upp og lagst í svefnpoka fyrir utan Skífuna. Þegar þar að kemur. Heyrði líka Rás 2 spila Bonnie Tyler. Djö væri nett ef hún kæmi. Myndi fylla Haukahúsið upp á hrauni. Ekki spurning.
Fór á skattstofuna í hádeginu. Hitti þar litla gamla manninn í vsk deildinni. Veit ekki hvað það er en ég er skíthræddur við kallinn. Hræddur um að hann spyrji mig spurninga sem ég veit bara ekki svarið við og hann skammi mig. Held samt ekki að ég sé beint hræddur við kallinn, meira hræddur við að það sem ég þekki illa. Skattamál og Virðisauki. Lífið of stutt fyrir það. Er hægt að drukkna í frumskógi?
Þurfti svo að koma við hjá Útlendingastofnun og sækja passann minn. Sá fólk þeysa út í rútu með skrítna hatta á hausnum. Árshátíð hjá fólkinu. Sá fólk með Pilsner í hendi. Mikið stuð á ríkisstofnanastarfsmönnum. Pilsnerinn íslenskur – Tryggir starfsmenn.
Veðrið leiðinlegt. Rok og rigning. Maður hleypur milli húsa og bíla og grettir sig upp í vindinn. Aðeins ljótari í leiðinlegu veðri.
Annars segi ég nú bara på gensyn núna. Er að fara til Kaupmannahafnar í fyrramálið í skottúr og kem aftur þriðjudag. Bið ykkur vel að lifa á meðan. Og líka eftir að ég kem heim.
God weekend.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home