Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, mars 10

Verslanamiðstöðvar

Maður heyrir oft ýmislegt þvaðrað og blaðrað um hvar best sé að versla og ég hef sjálfur tekið þátt í slíkum spekúleringum. Tvær fylkingar rísa upp og ýmist tilbiðja útiverslun eða inni. Sumir vilja aðeins halda sig innan veggja verslanamiðstöðva, þar sem smjörið virðist leka niður veggina; á meðan aðrir berjast hástemmt fyrir verslun á Laugaveginum eða öðrum slíkum verslunargötum. Vilja hvergi frekar vera en í sudda eða votu að versla við, stundum, sérviskulega kaupmenn götunnar.

Ég sjálfur, er nú líka á því síðarnefnda. Það er að segja – mér finnst stuð að fara Laugaveginn og Smáralindin getur valdið útbrotum. Þetta er bara svona og misjafnar skoðanirnar auðvitað. Eðlilegt. En ég held að ég sé barasta bara kominn með lausnina. Lausn sem allir gætu verið ánægðir með. Innipúkar og útiverur.

Ég legg til að þegar næst verði skipulögð verslun skipulögð, verði þetta þannig úr steypu gert að þegar þú kemur á staðinn, þá hafirðu ekki hugmynd um, hvort þú sért staddur inni í verslunarmiðstöð eða úti á götu. Einskonar Miðstöðvarvegur (Verslunarlaug?).

Alveg er ég viss um það að hægt væri, með grafík, hönnun, ljósum, litum, speglum og jafnvel dash af sjónhverfingum að búa til slíkt fyrirbæri svo allir gætu glaðir verslað saman en ekki í sitthvoru.

Föndrað við rýmið og rugla fólk lítillega í ríminu í leiðinni.

Mín tillaga.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home