Mikið um sjálfan sig af öðrum
Þekki mig auðvitað ágætlega. Fyrir utan það að vera mitt á milli gaur þá hugsa ég ýmislegt og finn annað sem mér er eðlilegt. Er ég og gerir mig að mér.
Held þó maður geti ekki alltaf þekkt hvern krók og kima af sjálfum sér og sumt sér maður hreinlega bara ekki, né veit um sjálfan sig. Við og við fattar maður þetta og lærir og oftar en ekki áttar maður sig á þessum hlutum í samneyti við aðra. Maður lærir ekki bara á sjálfan sig á því að vera einn með sjálfum sér. Það er frekar að maður læri því meira um sig sjálfan með öðrum. Það eru nefnilega ýmsir smá hlutir og stórir sem aðrir taka eftir í fari manns en maður sér ekki sjálfur.
Ég hef tekið eftir þessu síðustu mánuði, hugsanlega vegna þess að ég hef eytt æ minni tíma einn með sjálfum mér.
Ég á það víst til að liggja á maganum þegar ég vill ekki tala um einhverja ákveðna hluti. Ég get víst verið ráðríkur og gjarn á að reyna að koma mínu að. Þó á lúmskan hátt. Þá hef ég áttað mig á því að mér finnst mjög óþægilegt að koma of seint á staði. Þetta og meira sem ég nefni ekki hér.
Mér finnst gott að þekkja sjálfan mig en jafnvel enn betra að kynnast mér. Að fatta mig aftur.
Maður getur lært ýmislegt um sjálfan sig af öðrum.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home