Fólkið í bænum
Ég skoða stundum fólkið í bænum. Fólkið í kringum mig. Ekkert svo forvitinn að eðlisfari, held ég en hef gaman af því að rýna og skoða. Rita svo jafnvel niður það sem ég sé.
Það er t.d. einn stöðumælavörður sem vinnur göturnar í miðborginni. Tekur starf sitt alvarlega, enda góður í því líka. Er gjarn á að taka létt spjall við fólkið sem leggur ólöglega, ef hann nær á það. Hef sjálfur lent á honum. Hann leggur manni létt, lífsreglurnar og leggur áherslu á mikilvægi þess að leggja nú löglega, kaupa P kort, nýta mismunandi P númer og fleira.
Þessi maður er líklega í kringum 35 ára aldur og ég reikna með að hann hafi unnið í þessu starfi í nokkur ár. Stundum sé ég hann í fylgd með öðrum, yngri stöðumælavörðum sem virðast ekki deila sama áhuga fyrir starfinu og hann. Síðhærðir, draga þeir lappirnar á eftir honum niður Laugaveginn og humma þegar hann fer yfir reglur, venjur og hefðir starfsins; mikilvægi þess að rabba við viðskiptavininn, kynnast honum. Ekki viss um að þetta komist þó allt til skila.
Leyfði kollinum að fara á stutt flug. Held að hann sé einhleypur og leigi litla stúdíó íbúð í Hlíðunum. Hann ólst þó upp út á landi og saknar stundum heimahaganna. Fjallanna. Þurfti að yfirgefa bæinn vegna skilnaðar á sínum tíma og ílengdist í borginni. Bauð einu sinni stelpu út sem vann með honum en það gekk ekki vel. Er varfærinn síðan í þeim málum. Ef hann þó kemst í nálægð við konur hikar hann þó ekki við að segja þeim frá starfinu sínu. Stoltur. Hann á kött, sem rataði inn á hann ómerktur eitt sinn og líkaði mjólkin. Honum finnst gaman að fara í bíó og Steve Martin er uppáhaldsleikarinn hans. Nafn? hmmm... Friðfinnur?? Til dæmis.
Eitthvað svona. Eða bara alls ekki.
Hver veit.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home