Um dag og veg i lifi Storks

mánudagur, mars 22

Fyrirsjáin

Maður getur stundum séð hlutina svolítið fyrir. Sumir bera utan á sér að eitthvað sem er lesanlegt, mælanlegt. Eðlilegt.

Maður sér stundum áður en nokkur samskipti eiga sér stað hvað er í vændum hjá viðkomandi. Fyrir hvað hann stendur, hvað hann ætlar að segja, hvaðan hann kemur og hvert stefnir. Ég líka.

Kallast að vera fyrirsjáanlegur. Leiðinlegt þegar þannig er. Held þó að ekki verði hjá því komist að hafa fyrirsjána með í farteskinu í og með. Gengur ekki upp. Maður þarf líka að geta vitað að hverju maður gengur, hvar maður hefur hlutina. Fólk. Annað gæti slegið mann og meitt.

En hitt er þó skemmtilegt líka, að hrófla við norminu og stuða smá. Segja hluti sem fáir eiga von á frá þér og framkvæma aðra sem enginn hefði átt von á! Hvet ég því alla til að vera ekki fyrirsjáanlega í dag. Að koma á óvart og gera eitthvað alveg alveg alveg nýtt. Líka hægt að fara á óvart. Það er ekki fyrirsjáanlegt.

Núll fyrirsjá.

Bara í dag. Og kannski smá á morgun líka.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home