Tsssssss
skrifleysi herjar á mig í dag
hef ekkert náð að tjá mig með netpennanum. Verið upptekinn við annað.
Get þó sagt ykkur það að ég vaknaði með smá skeifu á vörunum. Ekki stór en skeifa samt sem áður. Skeifan rann þó fljótt upp í beina strikið og svo rétt upp í hvorn kant og nú er ég bara góður. Svona er þetta stundum.
Skrítinn dagur að baki en ágætur samt. Hef einhvern veginn verið mjög upptekinn en ekki komið miklu í verk. Veit ekki hvort einhver kannast við þá tilfinningu en þetta henti mig í dag. Áreitið lamdi hausinn. Ahhh well, verkefnin bíða morgundagsins. Dagur eftir þennan. Nótt eftir þá næstu.
God weekend
storkur

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home