Íssól
Sólin hefur skinið á okkur síðustu daga og þrátt fyrir gluggaveðrið sem þó ríkir ennþá þá sér maður allt í einu fullt af fólki í stuttbuxum. Að því virðist eingöngu af því að sólin rétt sýnir á sér sparihliðina og gefur smá glætu skellir fólk sér í stutt og berar hvítt. Kannski alveg skiljanlegt svo sem eftir langan veturinn. En samt. Glætan.
Þó er ekki komið sumar. Það ER gluggaveður og ennþá frekar kalt. Þetta er samt svolítið merkilegt, hvernig maður getur stundum hlaupið á sig. Þegar maður er búinn að bíða lengi eftir einhverju og fær svo loks agnarlítið sýnishorn af því, þá á maður það til að gleyma sér. Missa sig.
Held að þetta geti átt við fleira en bara íssól um miðjan vetur.
En hey, það er komin helgi og ég ætla að fara inn í hana glaður í bragði. Það var nefnilega réttur dagur í dag. Föstudagur. Þurfti ekki að hlaupa handan sjóndeildarhringsins né hljóp ég á mig út af sólinni. ; -
God weekend.
Storken

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home