Örviljanir vs tillögurnar
Sumir trúa á örlögin, aðrir á tilviljanir.
Ég held hins vegar að stundum sé eitt örlag það sama og ein tilvilja. Ef viljinn er fyrir hendi skilur það eftir sig ör uns næsta lag er leikið.
Að örlögin séu ekki hrein, heldur einnig tilviljunum háð.
Held að maður geti stundum haft eitthvað um þetta allt að segja. Að lífið sé tilviljun í eigin höndum. Maður höfundur eigins efnis.
Kannski snýst þetta þá ekkert um örlög eða tilviljanir, heldur örviljanir, já eða bara tillög(ur).
Allt sé tillaga og það séu hin hreinu örlög mín?
Måske
(sorry, old stuff kannski – no time!)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home