Rölf á mánudegi
Á það til að röfla stundum. Ekki oft held ég en stundum. Það er bara eitt sem ég skil ekki. Það er stöðumælakerfið í miðborginni. Ég er þannig að ég á sjaldan tíkalla, fimmtíukalla og hundraðkalla. Á ekki veski og er eiginlega bara algjör debetkall. Þ.e. debetkorta.
Ég er svo vitlaus
Ég hélt að bílastæðahúsin væru fyrir þá sem ekki ættu mynt í mælana. En þau eru bara enn verri! Til að geta lagt bílinn sinn í bílastæðahúsi þarftu nefnilega að eiga hundraðkalla. Mynt. Í lausu! Og það var einmitt þess vegna sem ég fór lagði ekki í venjulegt stæði. Það er ekkert mál að komast inn en á leiðinni út aftur mætirðu stórum slagbrandi sem neitar þér útgöngu. Engin lifandi sála er á ferli í júníform til að skipta fyrir þig þannig að ef að þú átt ekki klink þá verður maður að gjöra svo vel að fara út í hraðbanka, svo í sjoppu og svo að borga í vélina. Slagbrandurinn frá.
Ég kann ekki að leggja fyrir pening.
Hmmm.... mánudagur.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home