kaupmannahelgi
Heimsótti rætur mínar um síðustu helgi en þær liggja nokkrar í DK.
Kaup Manna höfn stóð undir nafni. Kaupmennirnir náðu að selja mér sitthvað gott og sitthvað flott. Aðallega þó kaupmenn Hennes og Mauritz sem voru afar vingjarnlegir. Annars mjög góð ferð til föðurlandsins og storkurinn er greinilega ekki alveg gleymdur né grafinn. Gaman að upplifa það sko.
Hér eru annars nokkur einkenni og atburðir helgarinnar ...
Gríðarlega margir matsölu og matvörustaðir bera nafnið Al hamid, Swafala, El rahid kebab og svipuðum nöfnum.
All margir Danir drekka bjór á opinberum stöðum, lestum og á förnum vegi í kringum hádegisbilið. Vel klæddir og minna klæddir. Löstur og lestir. Hreinir sem óhreinir.
Danir hafa tekið í notkun all verulega gott sjálfvirkt neðanjarðarlestakerfi (virkaði allavega þessa helgi) sem kemur manni á örskotsstundu frá Amager til Kongens Nytorv, til Nörreport og aftur á Hovedbanen.
Classic Tuborg bjórinn bragðast afar einkarvel við Nýhöfnina.
Danmarks Design Center er góður staður að koma á. Sýning á hönnun og saga hönnunar aðalsmerki. Allt frá rauða danska póstkassanum til eggs Arne Jacobsen og sitthvað þar á milli.
Góð ferð. Mæli með ´essu!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home