Biðin
Er kominn í svona samband eins og margir og hef verið nú um nokkurt skeið. Þar áður reyndi lítið á mig í þeim efnum; var í stuttum viðsnúningum í mesta lagi 3 mánuði en yfirleitt dugði ég aðeins í örfáar vikur. Erfiður gaur stundum.
Allavega.
Nú eru liðnir nokkrir mánuðir og strákurinn sáttur. Þó ýmislegt sem breytist. Er öðruvísi. Eitt það helsta sem mér finnst einkennandi við svona snúning er biðin. Maður er alltaf að bíða! Ég þarf að vera þarna klukkan þetta og hitti þig því þarna því þú þarft að mæta hingað og ég skutla þér þangað og hinkra meðan þú gerir þetta meðan ég þarf að stússa þetta og ertu ekki að koma því ég er orðinn of seinn þangað og sorry hvað ég var lengi, búinn að gleyma að þú þurftir bílinn til ná þessu áður en ég færi á þangað... O.s.frv.
Þetta er stúss svolítið og stundum beðið.
Stundum verið snúið og var eitthvað sem ég þurfti að venjast. Böggar mig þó ekki lengur; hef fundið það út að það er ekkert mál að bíða stundum.
Var enda búinn að bíða lengi áður...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home