Hugarástand veturssumars
Stundum sjá augun veturinn á meðan sólin skín í huganum. Stundum er þetta á hinn veginn; að þegar í sólina glittir, dynur rigningin á rúðuna sem engin er. Ímyndaður snjórinn þyngir brúnina og skeifa rennur á munnvikin.
Allt spurning um hugarástand. Svolítið ástand að þurfa að reiða sig á slíkt stand.
Góður dagur í dag getur í raun reynst slæmur dagur í dag, morgundagur með slæm fyrirheit reynst skemmtileg vika að baki; eftir nokkra daga þegar litið er í baksýnisspegilinn.
Maður veit aldrei, aldrei að vita.
Líf (,,ljómi þinn er skínandi skær!").

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home