Um dag og veg i lifi Storks

föstudagur, apríl 2

Undarlegt

Keypti mér pulsu á Bæjarins bestu í gærkvöldi. Maðurinn á undan mér keypti sér pulsu með öllu. Nema pulsunni! Bara brauð fyllt með sósu og lauk. Ég trúði þessu ekki fyrst og rýndi yfir öxl mannsins ofan í pulsubrauðið hans en nei. Pulsa hvergi sjáanleg.

Fannst þetta mjög undarlegt. Þetta er svona eins og að borga sig í bíó bara til að fara í sjoppuna þar eða fara í klippingu en láta bara greiða sér.

Veit ekki. Fannst þetta allavega undarlegt.

Annað sem er undarlegt (en samt ekki)

Hér fyrir nokkru sagði ég frá því að eftir smá sjálfsrýni þá hefði ég komist að því að, tjaaa... að ég væri svona mitt á milli gaur. Enn ein sönnun þess er málið og málin á gallabuxum. Hvað er málið?? Ok. 34 í sídd er svona ííívið of stutt á mig. 36 í síddina er svona ííííííívið of sítt á mig. 35 ekki framleitt. Figures! Mitt á milli gaur, búinn að segja ykkur það.

Föstudagur og nok at lave. Tölumst seinna.

Stork

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home