Um dag og veg i lifi Storks

föstudagur, apríl 23

Dyntir í kaffivél

Sumir eru vinsælir, flottir og eftirsóttir. Láta aðra því stundum bíða eftir sér. Þannig er það bara. Getur þó líka átt við líflausa hluti sem tjahh... reynast svo nokkuð líflegir bara. Eins og kaffivélin hérna í vinnunni t.d. Býr til gott kaffi. Veit líka af því.

Mætti einn morguninn og ýtti á ON takkann. Please wait a minute sagði hún mér þá með tölvugrænum stöfum. Þegar hún svo loks var búin að nudda stírurnar og stunda hefðbundnar morgunæfingar komu þeir tölvugrænu fram á ný. Rinse unit. Ok, rinsaði júnítið og taldi mig góðan. Brakandi og ilmandi í vændum? Ekki alveg. Empty grounds! Þetta er það allra leiðinlegasta. Hreinsa gamalt kaffi og leifar. Kaffileifar.

Gekk þó allt á endanum og ég fékk mitt kaffi. Kaffið biðarinnar virði og hún vissi það alveg. Kaffivélin. Enda mæti ég aftur á hverjum morgni og vona í hvert skipti að vinkona mín kaffivél hafi sofið vel, dreymt ljúfa drauma og skrölt sér af sér stað réttum megin við rúmið.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home