Special price for you my friend
Keypti mér pylsu um daginn á Esso stöð hérna rétt hjá. Var pínulítið að drífa mig og flýta mér. Má bjóða þér safnkort, spurði stelpan í afgreiðslunni mig þegar hún tók við pylsupöntuninni. Ha, nei nei. Nei takk. Bara pylsu. Það er rosa sniðugt hélt hún áfram. Þú getur safnað punktum upp í dvd spilara og ... Já, ha, nei nei. Nei takk. Bara eina með öllu. Afþakkaði safnkort Esso.
Hef nefnilega aldrei áttað mig á svona einhverju. Þegar ég heyri um svona kerfi þar sem ég get fengið þetta ef ég geri þetta, baaara með því að gera smá svona, kúpla ég bara alveg af. Meika ekki að setja hugann við þetta og hef því aldrei átt svona bónuskort eitthvað, átt Flugleiðarvildarpunkta eða hringt inn á útvarpsstöð til að vinna innkaupskörfu hjá Nóatúni.
Veit ekki.
Ég er kannski að missa af góðum dílum hér og þar en ég hreinlega nenni ekki að setja mig inn í þetta. Of erfitt, of leiðinlegt. Lífið bara of stutt. Ef ég hefði þó alltaf hlustað og þefað eftir öllu svona sniðugu gæti ég hugsanlega hafa sparað mér hundruði þúsunda króna. Væri þó jafnvel aðeins ríkari í dag.
Skal punkta það hjá mér.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home