Lentur?
Þetta er flugstjórinn sem talar... þú ert alveg við það lenda og ert bara svona rétt aðeins ólentur ennþá.
Þannig líður mér eiginlega. Kom heim frá London seint á sunnudagskvöldið og er eiginlega ekki alveg búinn að ná mér ennþá. Fötin ennþá í töskunum og strákurinn ennþá soldið sybbinn (sofnaði t.d. fullklæddur í nótt og vaknaði kl. 4 með andfælum. Og kærustunni auðvitað. Slokknaði bara á mér) Hjólin hafa snert jörðina en fæturnir ekki ef þið skiljið mig.
En mér skilst að á morgun sé frídagur og ætla ég nýta mér hann vel. Sofa út og afmá langlífa sybbuna. Kannski að sofa léttklæddur. Taka síðan upp úr töskunni og skipta yfir í íslenskuna. Tungumál og fataskáp.
Annars góð ferð og ég var jafnvel að spá í að setja létta umsögn og ferðasögu hingað á síðuna við tækifæri. Aðgangsorð ferðarinnar var Crystal, lykilorðið Kósí. Þar hafiði það. Þetta kemur vonandi fljótlega hingað á dag og veg Storksins.
Annars er svo margt sem mér langar til að segja en hef ekki fundið mér tíma til undanfarnar vikur. Steypan rennur í stríðum straumi og aðeins tímastíflan heldur henni frá því að renna út í hafið. Hmmm... ok, sorry. Sem sagt betrumbót bráðum.
Kósí Stork

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home