Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, apríl 7

Ja hérna fólk

Sumir eru svona ja hérna fólk. Það er fólk sem gæti hugsanlega líka flokkast undir svona hissa fólk.

Þessu fólki virðist bregða við hverja spurningu eða fullyrðingu sem þeim er borin. Eitthvað sem ber ögn af nýjum fréttum eða kemur agnarögn á þau hefur það í för með sér að það svarar með; Ja hérna! Það þarf ekki alltaf að vera mikið atriði eða merkilegt til að stuða svona fólk. Flest allt í rauninni getur framkallað ja hérnað...

Við þekkjum öll svona fólk.

Sumir verða líka ofsalega hissa í leiðinni og eru á svipinn eins og gamall draugur úr mýrinni hafi einhent sér upp á yfirborðið til að koma þeim á óvart. Gaman að því. Þá eru nokkrir sem slá sér líka á læri í þessum látum öllum en þeir eru þó fáir.

Undarlegt.

Svo er það So fólkið. Fólkið sem kippir sér aldrei upp við neitt. Hemur andlitsdrætti og keflar viðbrögðin og segir bara, So!? Hvað er málið? Ha, hmmm...? So? Stundum afundin, stundum pirruð. Stundum alls ekki en aldrei undrandi. Alltaf reiðubúið, ekkert kemur á óvart. Aldrei.

Veit ekki hvar ég ligg í þessu öllu. Ætli ég sé ekki bara svona nettur gaur. Heyri ekki mikið, segi fátt og hef lítið um málið að segja. Segi bara ok, nettur þegar ég er spurður. Klikkar ekki.

Nettur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home