Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, apríl 27

Kósí London

Kom heim frá velheppnaðri London ferð seint á sunnudagskvöldið (fyrir viku síðan!). Ferðin var í alla staði rosa kósí enda mjög kósí að fara í fótboltaferð til Englands þegar sólin skín og þokan liggur handtekin yfir Skotlandi á meðan. Spiluðum tvo leiki við lókal lið landsins og úrslitin voru eftir bókinni (eða kannski ekki?). Unnum Wimbledon og gerðum jafntefli við Brentford.

Hitti fyrsta þjálfara David Beckham í ferðinni. Hann er yfirþjálfari Wimbledon og þekkti leiðina á Selhurst Park. Ég þurfti að komast þangað. Vissi þó aldrei hvort hann var tískulögga eða fótboltaþjálfari. Fyrsta hárgreiðslan eða fyrsta fyrirgjöfin.

Tók eftir því að flest er öfugt í Englandi. Auðvitað engin ný sannindi að ökumenn keyra öfugu megin á veginum en tók nú eftir þessu samt. Tók líka eftir því að sama regla gildir á göngum og gangstéttum. Þar á maður líka að ganga hinum megin við. Þá er líka hálföfugsnúið að vera með teppi útum allt og upp um allt og eins fannst mér frekar öfugsnúið að bjóða upp á slátur. Í morgunmat. Í apríl. Þá fór kaffið jú líka öfugt oní mig.

Fór svo á Camden markaðinn á laugardeginum. Frábært að koma þangað. Markaðurinn er held ég gríðarlangur en við komumst bara um 20 metra á þeim 1 og hálfum tíma sem við höfðum til umráða. Of mikið að sjá, skoða, máta. Ég keypti mér skyrtu sem einhver Ralph virðist hafa átt áður, sólgleraugu og 4 húfur. Fann svo hreindýrafingurhring og orange litaðan Clockwork Orange bol fyrir Ingibjörgu. Kínverskur veitingamaður bauð mér síðan smakk en varð svo fúll þegar ég vildi ekki kaupa allan réttinn. Góður! Góður markaður sem tekur mann daginn að skoða held ég.

Góð ferð en gott að koma heim.

Ps. Neyddist til að kaupa mér eingöngu stóra bjóra í ferðinni. Litlu glösin fundust ekki á lager.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home