Um dag og veg i lifi Storks

mánudagur, apríl 26

Maður með trjágrein, kona með húfu

Var að vinna um páskana hérna í Sóltúninu. Leit út um gluggann. Sá fullorðið par úti að labba. Hann með kúrekahatt og dauða trjágrein í hendinni, gekk 2 metrum á undan henni. Hún með húfu og í kápu. Virtist vera öfugur segull á milli þeirra því þau gengu aldrei saman eða í námunda. Hvort við annað.

Sáu allt í einu kött sem sat á bílaplaninu ringlaður að vanda á tilveru sinni í þessum tvífætta húsbóndaríka heimi. Maðurinn sá köttinn og byrjaði að leika við hann. Potaði greininni eitthvað í áttina að kettinum og gaf þannig í skyn að kötturinn ætti að elta. Fyndinn. Kötturinn hreyfingarlaus, jafnvel enn ringlaðri en áður. Hreyfði ekki loppu sína þumlung.

Ok, 2 ástæður fyrir því að maðurinn ákvað að leika sér við köttinn. a. Leiður á lífinu og konunni. Nennti ekki labba eða tala við hana. Kötturinn gott skúmaskot. b. Reyna að vera fyndinn. Ganga í augun á konunni. Feiminn og kunni ekki önnur ráð. Spurning.

Svo var raunin að konunni fannst greinilega lítið til koma og gekk áfram án þess að virða leik mannsins við málleysingjann viðlits. Maðurinn gafst fljótt upp á leiknum enda þarf yfirleitt 2 fyrir tangó. Og til að leika. Gekk hann því næst eftir konunni, nú tveimur metrum á eftir henni. Sló greininni tilviljanakennt í jörðina, skóf möl af stéttinni, ranghvolfdi augunum og blés stórum.

Skyndimynd af trjágrein, ketti og konu með húfu á löngum föstudegi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home