Seigur Jón
Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra haggast ekki. Bara alls ekki!
Í gær var hann í viðtali í 10 fréttum og var yfirvegaður að vanda. Starði beint í augu fréttamanns og sagði skilmerkilega frá. Allt þetta þrátt fyrir að á skyrtu hans væri stór blettur sem líklega var eftir glataðan kaffibolla. Hann hefur líklega heldur ekki kippt sér upp þegar heitt kaffið lenti á brjóstkassanum. Kannski blikkað augnlokunum einu sinni.
Seigt í Jóni.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home