Þvottavélaflugtak
Ég fylgdist aðeins með þvottavélinni að verki um daginn. Ég hafði komið niður til að taka úr henni en hún var ekki búin að ljúka sér af. Ég settist því gegnt henni og hinkraði.
Hún var komin á fremsta hlunn að bera, vélin. Takkinn lá þétt við off strikið sem þýddi að hún mundi fljótlega vera búin að þvo allt. Í þessari umferð. Þetta reyndist þó lítil blekking, hún átti eftir að vinda og það tók dágóðan tíma. Kannski þvottavélabrandari. Veit ekki. Settist í það minnsta og fylgdist með.
(Frh á morgun)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home