Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, júlí 13

Einn á báti

Sigli einn um júlíhöf í ár. Keyrði kærustuna út á flugvöll í morgun og kyssti hana bless til Barcelona. Hversu lengi er óvíst en allt upp í sex vikur stendur á planinu. Veit. Slatti!

Viðbrigði. Von - brigði. Vona að ferðin verði frábær.

Kem til með að sakna stelpunnar en er nú samt ánægður með hana. Það eru nefnilega góð plön sem gera góða ferð og Barcelona er bæði plan og ferð. Heimsótti hana einu sinni í 5 daga en vildi ég hefði átt 15. Fallegir hlutir og hönnun sem gaman var að sjá en eins og það er skrítið, þá man ég einna helst eftir lambasamlokunum hjá Pepé, José, Gustavo og öllum hinum gömlu guttunum á samlokusígarettubörunum. Svolítið skrítið. Eins og sigling í söltum sjó í júlí.

Það góða er þó að blikkandi geimfar sést úr óóórafjarlægð.
Óvænt og óskiljanlegt.

Eins og þessi texti kannski. 

2 Comments:

Blogger BJ said...

rooooooooooooooosa geimfar ! ! ! íh´hiíhíhíh

1:43 e.h.

 
Blogger Darri said...

djö skrítinn mar. Svona er þetta nú magnað fyrirbæri!

3:05 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home