Samurai
Ég sé stundum mann þjóta fyrir utan bílgluggann minn. Hann þrammandi á gangstéttum borgarinnar, ég brunandi framhjá í Golfinum. Þetta er maður í kringum 7tugt sem alltaf er klæddur í svört jakkaföt, hvíta skyrtu, svart bindi og með svarta hanska og þá meina ég alltaf. Þá er hann með sítt hvítt hár sem tekið er saman í tveimur teygjum sem minnir mann á Samurai stríðsmann. Meiri töffara þekki ég ekki. Ég hef fylgst með honum úr fjarlægð en með aðdáun í nokkurn tíma og hef alltaf langað til að vita meira um hann; hefur vakið forvitni mína enda eins og snoðklipptur út úr Reserviour Dogs genginu.
Á föstudaginn rak ég augun í hann í verslunarmiðstöð í borginni þar sem hann stóð og starði út í rigninguna. Þarna stóð hann bara eins og grjóthnullungur á gólfinu, óhagganlegur með hendur niður með síðum og horfði út. Sýndi engin viðbrögð. Teygjurnar í hárinu voru teygðar óaðfinnanlega og skórnir glansandi svartir. Hvítur skyrtuflipinn teygði sig hátt upp hálsinn á honum en huldi annars kolsvart bindið algjörlega. Eins snyrtilegur og mér hafði áður sýnst. Ég færði mig nær og stóð nokkra stund við hliðina á honum og starði með. Þarna stóðum við svo í nokkur augnablik saman og spegluðum okkur í regndropunum. Ég var að spá í að spyrja frétta, leggja inn nokkur orð en hætti við. Fannst nóg að horfa á regnið falla á bílþökin með honum í bili.
Ég velti líka fyrir mér á þessari stundu hvort hann væri kannski eitthvað annað og meira en 7tugur töffari. Af þessum heimi kannski ekki?
Veit ekki.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home