Meirihlutinn ræður, meirihlutinn ræður!
Þessi orð heyrði maður oft hljóma á skólavöllum í gamla daga þegar lítill hópur þurfti að taka ákvörðun sem skipti honum í tvær fylkingar. Það var viðtekin venja og viðurkennd að meirhlutinn réði og allir skildu það þó svo að við kölluðum það ekki nafninu Lýðræði í þá daga. Það var bara þannig og þurfti ekkert að flækja það neitt meira.
Ég skil vel lógíkina á bak við þetta. Lýðræðið. En er þetta endilega alltaf betra? Er eitthvað viðtekið og viðurkennt að þegar meirihlutinn ræður að betri ákvörðun sé tekin? Ekki endilega, segi ég. Ættum við kannski einmitt að feta okkur eftir minnstu stígunum og taka meira mark á þeim minni? Hrópa minnihlutinn ræður, minnihlutinn ræður og sjá hvað gerist?
Þetta er auðvitað bæði flókið mál og ekki en við skulum ímynda okkur nokkrar aðstæður þar sem minnihlutinn fengi að ráða ...
* Fjölmiðlafrumvarps ó málið væri ekki á þessum villigötum þrjóskunnar ef minnihluti þings (reyndar meirihluti þjóðar) hefði fengið að ráða.
* Öll byggjum við í nálægð við miðborgina eða í sveita- og náttúruperlum um landið. Grafarvogur væri líklega ekki til.
* Allir myndu versla í (ein)stökum verslunum með himnafestinguna eina yfir búðarþökunum.
* Enginn myndi borða hnetur. Reyndar væru þær líklega bara bannaðar með lögum.
* Flestar myndir í bíó væru evrópskar. Eða í það minnsta mjög góðar (það væri reyndar heldur ekki hlé í miðri mynd en ég veit ekki endilega hvort það væri til batnaðar).
* Eldsmiðjan seldi fleiri pizzur en Dominos. Réttlæti og bragðlaukum fullnægt.
* Bush hefði aldrei orðið forseti (þessi liður reyndar óljós), við værum löngu búin að vinna Eurovison og Jesú ætti líklega afkomendur.
Sem sagt.
Meirihluti góðra verki væru minnihluta ákvarðanir og minn (i) hluti yrði meirihluti. Meirihlutinn gæti ekkert gert á minn hlut.
Held að það gæti verið meiriháttar.

3 Comments:
Djö ertu skrítinn mar.... MAr á oftlega erfitt með að skylja litla kjúklingaskrákinn okkar...
Humm....
Hvað er ... "Allir myndu versla í (ein)stökum verslunum með himnafestinguna eina yfir búðarþökunum. " ?????????
10:37 f.h.
Ohhhh you so smooth!
Ég á nú stundum erfitt með að skilja skriftina þína mar.
Ekki vera að spyrja mig annars út í hvað ég er að skrifa. Stundum steypa, stundum grjót og oftar en ekki er þetta blanda af þessu bæði!
Chicken boy.
10:38 f.h.
Aldrei spíta ???
11:23 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home