Um dag og veg i lifi Storks

föstudagur, október 15

Hummel >>>>

Það er sumt í þessum heimi, dönskum eða öðrum sem ekki má hafa í flimtingum, hendur í eða fótum troða. Sum lögmál eru náttúrunnar og önnur mál ættu að fylgja þeim – enda alveg jafn mikilvæg. Ögn af dönsku stolti mínu fauk út í mitt prívat-a Kattegat heima í stofu í fyrra kvöld.

Ofur kurteis íþróttamaður Rúv, Þorsteinn Brynjólfur Brynjólfsson lýsti á afar næman og nærgætinn hátt mörkum Evrópuleikja fyrr um kvöldið í íþróttaþætti kvöldsins. Það var komið að því að sýna frá leik Danmerkur og Tyrklands og ég færðist fram á sófabrúnina. Ég lagðist þó fljótt aftur á rauða sófabakið, yggldbrýndur, opinmynntur og með krosslagðar hendur. Ingibjörg var að segja mér frá einhverju sem henni lá á hjarta en ég starði bara inn í sjónvarpsskjáinn án þess að veita því nokkra athygli. Eftir nokkra stund gat ég aðeins stunið upp, Sástu dönsku búningana? Ingibjörg svaraði mér auðvitað ekki enda hefði ég líklega ekki veitt því eftirtekt heldur. Neeeeeeeeeeeee hugsaði ég, for helvede! Ég hafði svo sem heyrt áður að þetta stæði til en hafði gleymt því aftur. Glottandi hristi ég bara hausinn þá í barnalegri trú um að sumir danskir hlutir væru danskari en aðrir. Í augum Dana eins og mínum sem horfðu á úr fjarlægri ís-eyjunni.

Danska landsliðið í fótbolta var í rauðum búningi að vanda en í þetta sinn lágu rendurnar langsum niður eftir ermunum á alveg ótrúlega óviðeigandi hátt. Hvergi bar á skástrikum og gömul minning um slæmar fréttir varð kristalklær á ný. Danska landsliðið var ekki lengur í dönskum Hummel búningum heldur hafði það skipti yfir í Adidas. Frá því ég var lítill polli man ég eftir Hummel klæddum frændum mínum í þægilegum stellingum á hverju götuhorni, enda Hummel fötin jafn kósí og danskur hugsunarhátturinn. Landsliðin hafa alltaf leikið þetta dönskum almúga eftir og því hélt ég að danskt Hummel og danskur bolti væri samasemmerki um danskt flaggskip.

But nú ist das öld allt anderes. Þýskt Adidas. Ussussuss. Ef þeir vildu endilega skipta þá hefði verið nær að skipta yfir í hið séríslenska Henson sem þó er sprottið upp úr gömlu dönsku lénsveldi. Í staðinn hafði hersetu og landnámi seinni heimsstyrjaldar verið sópað undir gleymskuteppið og merkið með strípunum þremur merkt sópinum. Ussussuss. Æji segi svona. Þýski hlutinn er auðvitað ekki aðalatriðið hér heldur það að Hummelið þykir ekki kósí lengur og það finnst mér mjög trist. Fyrir mér er Hummel nefnilega jafn danskt og Kim Larsen, konungsfjölskyldan, rauð pulsa á bakka með tveimur litlum brauðum, grænn öl á Strikinu, Ove sprogö og Olsen bandið, Preben elkjær larsen og rifnu stuttbuxurnar ´84, Sjúbbidúa, æðisköst Önju Andersen, smurða brauðið og beikonið. Já meira að segja jafn danskt og huggulegheitin. Helvíti kósí.

Í fyrrakvöld fann ég agnarlítið brot af hálfdanska hjarta mínu brotna eins stökkt beikon.

Danskt að sjálfsögðu.



5 Comments:

Blogger Darri said...

Ég vissi að gæti alveg treyst á þig Mr. Gjælfmaster. Segi nú ekki að ég muni flykkjast á bak við Blikana en hugsa vel til ykkar! : )

10:20 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Fyrst Joakim og Alexandra og nú þetta. Hvað er að gerast með Dani??? Og hvað næst? Kannski hættir Kim Larsen að drekka eða Magga Tóta að reykja eða Gerner að selja Hamborgara!

Þetta er svipað og að Íran myndi hætta að spila í hermannabúningum.

Og talandi um Kim og Möggu. Við getum nú báðir sagt það Darri minn að dvöl okkar í Hummellandi hafi verið fullkomin þar sem við náðum nú að hitta þau bæði. Gott ef þau voru ekki bæði í Hummel. Þvílík snilld! (Sumir hittu meira að segja Bruce Grobbler)

Ali Daei (fremsti íþróttamaður Íran fyrr og síðar)

2:34 e.h.

 
Blogger Darri said...

Djö vissi ég líka að ég gæti treyst á þig mr. Ali Dai.

Man þetta eins og gerst hefði í gær. Kim Larsen á Jacobs bar í rauðum Hummel galla og með ennisband í stíl. Memories maður.

Ekki gleyma Gunna. Hann hitti reyndar ekki Kim en hann hitti sko Möggu. Sæti reyndar líklega enn í fangelsi ef við hefðum ekki stoppað hann þegar hann vildi rjúka í hana og knúsa! hehe

Gud forgives ef Gerner mundi hætta að steikja burgers mar... : )

2:48 e.h.

 
Blogger Darri said...

Ali Dai skilur mig að sjálfsögðu líka!

Hummel minningar maður..

Kim Larsen flottur á Jacobs bar í Hummel dressinu frá toppi til táar og Gunni Ásgeirs að knúsa Möggu drottningu sem vissi ekki sitt rjúkandi ráð þar sem hún stóð í Hummel kjólnum sínum á bílaplaninu við Musikhuset.

We´ll always have Gerner! hehe

5:05 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Æi mér fannst nú Magga vera alveg steingeld en Bruce er alveg toppnáungi. Skítt þetta með Hummel, átti danska treyju þegar ég var gutti og spilaði eins og kóngur í henni á malavöllum víða um land. HM 86 treyjan minnir mig.

G.

5:08 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home