Falin myndavél á Alþingi
Við lok venjulegrar dagskrár Rúv um daginn var skyndilega skipt yfir í upptöku frá Alþingi. Þuríður Backman Vinstri grænum var þar í pontu að fjalla um Fjárlögin 2005. Fórst henni það ekkert sérstaklega vel úr hendi. Allavega gældi viskan og vitið ekki við tungutakið og hmmm, héddna og og og og... þæfðu ræðu um bókhaldsskýrslu niður í það síst heilagasta. Þuríði skorti eldmóðinn. Enda kannski erfitt. En ræðan var löng og það fór ekki á milli mála þegar maður fylgdist með Halldóri Blöndal í forsetastólnum fyrir aftan hana. Það var eins og falin myndavél hefði gómað Halldór við það að leiðast í vinnunni. Halldór góndi á kvistina, loftið og gaupnir sér til skiptis og var allur á iði í stólnum á meðan á ræðunni stóð. Sat einbeittur að hætti forseta en með fjarlægt augnaráð og sveimandi og ég hefði verið tilbúinn að leggja undir aleiguna eða hundraðkall að Halldór var að semja stökur í huganum.
Stöku stund á Alþingi.

2 Comments:
Kannski þarna sé "Stökustaður" fundinn. ÞEAS þessi sem alltaf er verið að tala um í veðurfréttunum mar... hah híhh.. híhíhíhiíhíhíhíh.
12:32 e.h.
Já auðvitað maður. Útskýrir ýmislegt.
Oh your´e so funny and smooth!
1:35 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home