Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, nóvember 17

101 > 105

Ég var að kaupa mína fyrstu íbúð. Ég og Ingibjörg það er að segja. 15. janúar fáum við afhent og þá munum við yfirgefa 101 póstnúmerið – í bili allavega. Nýja heimilið ber upp á Hofteig 34 sem er víst Þróttarahverfi. Þrátt fyrir það líst mér mjög vel á og hlakka til. Að opna hurðina fyrir verðandi fjölskyldu í Teigahverfinu.

En ég mun auðvitað sakna 101. Gæti líklega talið upp 100 og einn hlut sem ég mun sakna en læt nægja að nefna nokkra;

Súfistinn

Laugavegurinn

Þingholtin

Rölta um Þingholtin á kvöldin, kíkja inn um glugga og horfa á heimakæra miðborgarbúa slaka á. Hver með sínu lagi.

Rölta um Þingholtin og slaka sjálfur á.

Miðborg í vetrarbúningi

Gamlir menn með tréplanka

Gummi og Drekinn

Sandholt á laugardagsmorgnum

Baldursgata, Þórsgata og Laugavegur

Illgresi

Stöðumælaverðir (nei grínast)

Súfistinn (var ég búinn að segja Súfistinn?)

Listasafn Einars Ásmundssonar og klikkaðar stytturnar í garðinum. Seint á kvöldin.

5 Comments:

Blogger BJ said...

Hjartanlega sammála kjúklingastráknum. Er samt ekki alveg að skilja þetta með laugardagsmorgna - þ.e.a.s. að vakna á þeim.. Hvað er það..

Hehh jú jú jeg hef nú svosem kíkt í Sanholtið á lau eða sunn morgnum & fílaði það velvel er jeg á laugarveginum bjó. Núna kíki jeg hinsvegar stundum á bakaríiuð bergstaðarstræti...

En hva - ertu ekki að gleyma að nefna Nóatúns göngutúra & svona..

12:18 e.h.

 
Blogger BJ said...

íhíhíhihíhihihihíhhi

12:18 e.h.

 
Blogger Darri said...

Nei Nóatúnslabbið nær ekki inn á listann en örugglega fullt annað skrítið og skemmtilegt.

Mæli sérstaklega með upplýstum styttugarðinum seint um kvöld. Kreisí styttur þar.

Bjöggi, you and me man

1:05 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Hamingjuóskir með íbúðina. Teigahverfið er mjööög kósý á veturna. Þú verður bara að skipta súfistanum út fyrir Blómaval eða eitthvað. Líka stutt í world class :)

kv. Rut

10:27 f.h.

 
Blogger Darri said...

Takk fyrir það!

Já ég hangi kannski bara í Blómavali, drekk kók og kíki á plönturnar. íhíhí

11:28 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home