frostesja
Það glampar á Esjuna fyrir utan gluggann minn í dag. Eins og gullinn roði lýsi upp kollvikin hvítfenntu sem gægjast upp til skýjanna og yfir borgina. Útsýnið enda gott í dag og hægur leikur fyrir volduga Esju að fylgjast með borginni sinni vakna, vinna og vandræðast á sumardekkjunum. Borgin þó líkleg til að skeyta litlu þó Esjan horfi yfir öxlina á henni við dagleg störf; nema kannski einn og einn - svona við og við. Það er kannski einmitt þá sem útsýnið dvínur. FrostEsjan gripin glóðvolg á glápinu, fær skyndilegt feimniskast og rennir þokugardínum fyrir á ný. Þarf auðvitað að halda cool-inu.
Kannski best að vera ekkert að glápa mikið á móti. Segi svona.

2 Comments:
Þér finnst voðagaman að glæða dauðum hlutum líf.
Afhverju glæðir þú aldrei dauðum kjúklingum persónuleika....
" Halló halló Halldór ! Mikið ertu ljúffengur í dag uuummmmm. Veistu mjér þykir þú alltaf bestu híh´híhi´híhíh - ekki segja nokkrum frá því - þetta e okkar leyndamál híhíhihíh "
1:07 e.h.
Íhíhíhíhíhíhíhíhí
djö ertu sick gaur mar. uss uss uss
1:15 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home