Um dag og veg i lifi Storks

fimmtudagur, nóvember 11

Chet

Mæli með dagsins er Chet Baker. Ég hef sjálfur ekki þekkt Chet mjög lengi en þó nógu lengi en um leið alltof stutt. Chet er svona góður kunningi en þó veit ég fá deili á honum annað en að hann var jazz söngvari og saxófónleikari og sýnist mér á umslögum – hvítur. Í fyrstu lögunum var ég ekki viss um hvors kyns eða hverslags enda rýfur röddin ekki mikið í. Ber þó angist alveg ofan í lungu – og aftur til baka. Frábær söngvari

með rödd sem trítlar frá hrjúfum karlmannsbarka yfir í háhælaða kvenóma á svipstundu. Og alltaf er sax einhvers staðar bakvið.

Chet. Mæli með honum.

ps. Gott þykir að klæðast þykkum trefli og sveifla honum með einni handsveiflu heilan hring um hálsinn. Svona rétt áður en þú þrýstir á Leiktu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home