Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, október 27

Sunnudagur

Laugardagur hefur alltaf verið minn dagur. Hann er minn uppáhalds og minn staður - mín stund er að vakna seint um morguninn, rölta í bakaríið, hita svo kaffi og sökkva mér í blaðið. Fréttablaðið reyndar en samt sem áður mín stund – minn staður. Stúss, rölt eða hangs verður að kvöldi þar sem allt er opið þar til ein hugmynd lokar því þó yfirleitt að lokum. Góður matur og meira hangs, heima við. Letilíf í fullkominni parakeppni. Ég veit ég veit. Ég bara fíla það.

En síðan rennur upp sunnudagur. Hér áður vakti hann ekki hrifningu og minnti mig helst á leiðinlega vinnuviku sem var framundan. Nú er ég hins vegar öllu sáttari við sunnudaginn.

Hér í miðbænum er laugardagurinn töluvert annar en dagurinn eftir. Eftir ysinn sem einkennir opnunartíma dettur allt í dúnalogn á sunnudegi þar sem öllu er lokað fyrir eyðsluklær og aðra forvitna sem voru ,,bara að skoða”. Á þannig degi geng ég niður Laugaveginn og nýt fáliðaðs hvíldardags ásamt örfáum hræðum sem mig grunar að komi aðeins út þegar verslanir loka.


Aðeins kaffihúsin standa opin. Stundum er kalt og þá er sérstaklega gott að skjóta sér þar inn og finna heitan gustinn úr sjálfvirka hurðakerfinu þíða andlitið. Stundum er maður sérstaklega velkominn og tekur við kveðju yfir salinn frá ósjálfvirkum kaffihúsaeiganda sem allur hressist við - við að sjá viðskiptavin. Bágstaddi kaffisopinn bragðast svo yfirleitt alveg jafn vel og sjálfvirkur velmegunarsopinn. Kaffið kannski bara búið að standa aðeins lengur.

Á sunnudagskvöldi fer ég e.t.v. í mat í foreldrahús ef mér er boðið. Stundum býð ég mér sjálfur og það er nú yfirleitt í lagi. Held ég. Á boðstólnum er lamb, grís eða kjúklingur ef ég grísa rétt á. Kaffi á eftir rennur ljúflega niður með dönskum framhaldsþætti og ég fer að huga að kaupstaðarferð á ný. Ekki þó fyrr en pabbi er búinn að spila eitt lag með e-h seventies hljómsveitinni af nýjum disk sem hann var að kaupa. Heyrirðu bassann spyr hann mig og ég segi já. Ég heyrði hann og fannst hann flottur. Who er góð hljómsveit segi ég og kveð sunnudaginn í Firðinum.

Kem svo heim og uppgötva að það eru aðeins 2 tímar eftir af helginni og spyr sjálfan mig afhverju það geti ekki verið laugardagur.

Helgin er búin!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home