Hebbi
Sá Herbert Guðmundsson í gegnsærri silkiskyrtu af fingrum fram hjá Jóni Ólafssyni um daginn.
Sat gegnt Jóni sem spurði og Hebbi svaraði kallinu, stundum alveg út við hinstu mörkin á portúgölskum sundlaugarbakka. Sá myndir frá upphafsárunum og þeim bestu þegar hann söng My own direction.. attraction.. section.. can´t walk away. Eitthvað þannig. Ekki hægt að standa upp og ganga frá svoleiðis stöffi. Hebbi deildi reynslu sinni með Jóni bæði á íslensku og útlensku enda lent í því að reyna að meika það í útlöndunum og kann smá ensku. You tell them your´e from Iceland and they just look at you. Hey you, what are you trying to prove. Hey youhoohoohohooo, is it true?
Hebbi þarf ekkert að sanna fyrir mér. Þvílíkur fagmaður.

2 Comments:
íííííííííííhíhíhí ég man eftir þessari skyrtu hún var alveg ótrúleg.
G.
5:03 e.h.
Þokkalega!
3:59 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home