Language Timothy
Í mörg mörg ár hef ég verið með línu í kollinum. Stutt lítil lína sem hefur setið föst að eins og krónísk bóla, bara að innanverðu. Það hefur s.s. setning setið á heilanum. Ég vissi alltaf að hún væri úr bíómynd eða sjónvarpsþætti en vissi ekki meira. Mundi þó að mér fannst hún fyndin – í því samhengi sem hún var sögð. Ég hafði hana allavega í flimtingum.
Setningin er: Language Timothy!
Ekki svo sem merkileg setning en þrjóska hennar olli hugarangri og ól forvitni, og ég varð bara að kreista á og finna rótina. Athuga hvort ekki bólaði á svari. Ég ákvað að athuga hvort Internetið gæti hjálpað mér. Smellti mér inn á imdb.com, skrifaði setninguna og bað Netið um að finna út úr plottinu. Niðurstaðan var undarleg;
Sorry! – TV-series 1981-1988. Comedy
Plot outline: A 41 year old man is unable to leave home because of his domineering mother.
Ok! Undarlegt. Einhver Ronnie Corbett lék Timothy og Barbara Lott mömmuna. Setninguna segir hins vegar faðir Ronnie við Ronnie. Samtalið gekk svona fyrir sig:
Sidney Lumsden: Language Timothy!
Timothy Lumsden: Oh shut up father!
Sidney Lumsden: Fair enough!
Þetta uppljóstraði nú ekki miklu fyrir mér. Man ekkert eftir þessum þætti eða hinum kúgaða Corbett og mömmu hans. Ákvað að fletta upp Ronnie á Imdb:
Ronnie er breskur leikari, fæddur í Edinborg 4. desember 1930. Er feykivinsæll breskur gamanleikari og lék síðast í The All Star Comedy Show á þessu ári. Ég ákvað að google-a Ronnie og reyna að finna mynd.
Fann mynd af Ronnie og sá að ég þekkti þennan leikara! Leit á kreditlistann hans og sá að hann lék í Fierce Creatures 1997. Hann var einn af dýragarðsvörðunum. Leit svo betur yfir kreditlistann og sá að hann lék í sjónvarpsþætti sem bar nafnið; Prince of Denmark frá 1974.
Ekki ónýtt það.

2 Comments:
Þú vera skrítinn kall DJ minn....! !....
10:44 f.h.
Djö átti ég nú alveg von á svona kommenti. Viðurkenni það. Ég varð bara að koma út úr þessum skrítna skápi : )
11:51 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home