Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, desember 7

Plánetan Kristján

Horfði á masmikinn og óþægilegan Kastljósþátt um daginn. Skipuleggjandi styrktartónleika fyrir krabbameinssjúku börnin sat ásamt Kristjáni Jóhannssyni fyrir svörum vegna ,,ásakana” um að risafengin listamannalaun.

Þátturinn var masmikill vegna þess að stundum var ekki hægt að heyra orðaskil fyrir frammíköllum Kristjáns sem skildi hvorki upp né niður í einföldum fyrirspurnum Kastjóssfólksins. Af tón hans og orðum mátti heyra að honum blöskraði áhugi fréttamanna og þjóðarinnar á raunverulegum ágóða af tónleikum fyrir veik börn.

Þátturinn var óþægilegur því í stólnum sat hæfileikaríkur maður sem einhvers staðar á leið upp metorðastigann hafði hrasað um nokkur þrep hófsemis og virðingar. Það stakk að fylgjast með Kristjáni tala niður til þáttastjórnenda og íslensku þjóðarinnar úr gröf sem dýpkaði bara og dýpkaði. Af eigin hendi.

Af einhverri óforskammaðri veruleikafirringu hafði Kristján svo tekið með sér nýjasta geisladisk sinn, sem hann bar fyrir myndavélina allan þáttinn. Þegar honum loks leiddist umræðan og þófið skaut hann inn snögglega að, hann væri nú búinn að gefa út nýjan disk. Stuttri þögn sló á þáttastjórnendur og myndavélin sýndi okkur Kristján fálmandi vandræðalega með diskinn sinn að reyna að rétta þeim sýnishornið. Þau störðu aðeins forviða á en tóku ekki við.

Kristján nýtti þá háværa þögnina eins og logn undan stormi og stakk upp á því að við veittum disknum meiri athygli. Hann væri nú bara mjög merkilegur teldi hann og margir hefðu sagt það við hann. Íslendingar ættu auk þess bara að hætta að vera svona búralegir, dreifandi auri um þá sem nenntu að drullast til að gera eitthvað. Svo mörg voru þau orð um vangaveltur um velferð veikra barna.

Þátturinn var bæði "mas" en líka "mis", því Kristján telur sig slá hreina tóna í hjörtum íslensku þjóðarinnar en nær í besta falli að slá hana út af laginu. Og það þrátt fyrir merkileg lög frá plánetunni Kristján – handan veruleikaþoku og stjörnuskýs.

Þar sem allir drullast til að gera eitthvað.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Heyr heyr - maðurinn er stórskemmdur!!!
Minnir soldið á hrokann í ónefndum stórsöngvara sem hélt tónleika í Mörk þegar hann var upp á sitt besta. Spurning um að skella skottlokinu á hausinn á Kristjáni. Það virkaði á hina hetjuna!!!

A.D.

1:45 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Smá pæling: Að koma heim til Íslands, lækka sig um 75% í launum og halda tónleika sem skila hagnaði til krabbameinssjúkra barna upp á 4 milljónir króna.

Hvað er að því?

Er það kannski rétt hjá Kristjáni að við séum óttalegir sveitalubbar?

9:25 e.h.

 
Blogger BJ said...

Auðvitað erum við það..

11:06 f.h.

 
Blogger Darri said...

Hver skyldi söngvarinn í Mörk vera? Lumar AD á góðri sögu?

Það er ekkert að því að skila hagnaði en þá á hann ekki að vera að slá um sig og segjast aðeins fá fyrir kostnaði. Hann má græða eins mikið og hann mögulega getur fyrir mér og vonandi gengur honum alveg best í heimi! Fólk á bara rétt á því að vita að hverju það gengur þegar það kaupir miða. Bara synd því Kristján er talent kall.

Auðvitað erum við sveitalubbar í jakkafötum en er það ekki svipað og að vera heimsborgari í bóndagalla? :)

Sama hvað, þá er þetta stuð. Stuð að fá umræðu.

11:15 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Hvenig er hægt að koma því við að fólk viti nákvæmlega að hverju það gengur...sem náttúrulega er óskastaðan.

...væri hægt að hafa sundurliðaðan kostnaðarreikning aftan á hverjum einasta aðgöngumiða?

Með kveðju frá Mílanó, Kúrbíturinn

12:11 e.h.

 
Blogger Darri said...

Allt hægt : )

8:50 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home