Fjollet
Þátturinn með Hemma – Það var lagið. Veit ekki alveg með hann. Skilst að þetta sé einhver sigurfararþáttur um alla Evrópu og svo framvegis en ég bara veit ekki. Hemmi er reyndar flottur og betri mann hefði ekki verið hægt að tefla fram. Einhver góð tilfinning að sjá Hemma ná sér á strik á ný. Á skjánum.
En það er eitthvað vandræðalegt við þetta allt saman. Allir viðkomandi reyna sitt besta til að vera hressir og taumlausir og sumum tekst það vel. Öðrum ekki eins. Fólkið fyrir aftan klappar með og raular, sumir vandræðast og aðrir væla með. Sem sagt pínu vandræðalegt en það er eiginlega ekki það sem er að bögga mig.
Ekki viss um að ég viti hvernig best er að lýsa því. Pabbi hefur stundum notað orð um ýmsa hluti sem honum fannst skrítnir eða sérstakir. Fjollet. Menn og atburðir gátu verið fjollet og líka eitthvað sem maður sagði. Nej, det er sku for fjollet sagði hann kannski. Þegar ég spái í það finnst mér það orð eiginlega lýsa þættinum með Hemma best. Hann er svolítið fjollet.
Fjollet þýðir líklega í bestri þýðingu - kjánalegt. Samt er það mildara og ekki eins slæmt og íslenska orðið. Allavega í mínum skilningi. En þátturinn er vinsæll og fólk hefur gaman af. Og því er niðurstaðan kannski þessi. Það er bara ég sem er fjollet.
Sem er reyndar ekki eins slæmt og að vera kjánalegur : )

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home