Góð nöfn dýr
Góð ráð dýr og nöfnin enn dýrari.
2 dagar í skírn en hvað á guttinn að heita? Því eitthvað verður hann að heita – og heita vel.
Dugar ekkert hálfkák þar – eða hvað?
Ofan í allt þarf að skúra, skrúbba, bóna. Horfa á einn leik, með bílinn í viðgerð og klippa sig.
Raða stólum, hengja upp ljós, hita kaffi, taka á móti og kveðja á ný. Koma öllum fyrir, finna sæti. Hverju er ég að gleyma?!
Og skíra. Ekki má gleyma því.
En hvað skyldi lítill snúður vilja heita?

3 Comments:
Hvað með Barri Darrason ?? Eða Björgvin Ingibjargarson...
Eða Gönnrrr Barri Johansen eða Ingi Dóri Darrason, jafnvel Ruti Jóhann Johansen... eða Mikael..
Eða bara Gutti Snúður Johansen.
3:44 e.h.
Eða Haukur
3:44 e.h.
Lars Erik Johansen hefur mér nú alltaf þótt flott.
3:45 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home