Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, júní 21

Gamall?

Ég er 31 árs gamall en hvað þýðir það? Er ég gamall, ungur eða eitthvað þar mitt á milli? Ekki viss.

Ég hef oft heyrt því fleygt að aldurinn sé hugarástand, maður sé eins gamall og manni finnst maður vera. Hugsanlega. Það væri allavega þægilegt þannig. Gamall? Jú ég er nú 43 en það er ekkert að marka sko. Mér líður nefnilega bara eins og ... tja segjum 29. Og málið er dautt.

Ekki þó viss um að þetta sé alveg svo einfalt en held þó að hið ytra – umhverfi okkar, álit og aðstæður geti stundum svarað þessum spurningum fyrir okkur. En reyndar gefið misvísandi svör. Allt í kringum okkur eru nefnilega ýmsar tegundir af mælikvörðum á ellina.

Ég hætti í fótbolta í fyrra, þá þrítugur. Á fótboltamælikvarða var ég t.d. orðinn nokkuð gamall. Var einn af þeim gömlu - reynslubolti og eiginlega bara við það að verða svona "gamall jálkur í boltanum". Átti aðeins 3-4 ár í dauðdaga fótboltamannsins. 31 árs: Gamall.

En ef ég tengi mælikvarðann við starfsaldur þá er ég bara tiltölulega ungur. Búinn að vera á vinnumarkaði í um 5-6 ár og á því kannski 35 ár eftir. Miðað við það er ég bara vinnustaðahvolpur. Á mikið eftir – og inni vonandi. Flestir sem ég vinn með enda eldri en ég.

Þannig getur þetta stundum verið spurning um hálffullt eða hálftómt glasið - spurning um viðhorf og aðstæður. Að miða við það sem maður fæst við hverju sinni getur líka verið mjög frelsandi fyrir sérhvern sem finnst hann eldast hratt. Rúmlega þrítugur knattspyrnumaður sem hættir og gerist t.d. listmálari - verður í einni svipan tiltölulega ungur samanborið við aðra sem fást við það sama. Því listamaður er auðvitað ævilangur titill.

Já aldur miðast líklega alltaf við samhengið sem við er átt og nauðsynlegt að spyrja, greina og bera. Saman. Kannski bara hárrétt hjá fólki sem "fleygir" – að maður sé aðeins eins gamall og manni líður – og bannað að plata! Maður á líka alltaf að segja það sem manni finnst - heyrði ég einhvern tímann lítinn dreng segja í auglýsingu.

En ég viðurkenni það nú samt alveg að þrátt fyrir að aldurinn búi aðeins í kollinum á mér, að þá líður mér nú ágætlega vitandi það - að á meðan ég eldist um einn dag, ár eða tug – að þá gerir þú það líka! ; -

7 Comments:

Blogger BJ said...

En er 31 ár mikið fyrir t.d. rauðhærðan Tælenskann samkynhneigðan örfhentann Dverg með strípur, kollvik & síttaðaftan greiðslu. ???

Humm, neee bara svona að spögglera.

Hvað þá með kjúkling??

11:28 f.h.

 
Blogger Darri said...

Erfitt að segja Bjeggi minn, þú verður líklega bara að meta það sjálfur. Vertu bara hreinskilinn við sjálfan þig - hvað finnst þér sjálfum!?







ííhíhíhíhí

4:58 e.h.

 
Blogger BJ said...

Jeg er svona ca 25. Þroskaður, fágaður og fallegur, en umfram allt. fagmaður

10:43 f.h.

 
Blogger Darri said...

Neeee mar!

Veit nú ekki hversu fagmannlegt það er að segjast vera fagmaður. Það er eiginlega svolítið fúsk.

Uss uss uss...

11:45 e.h.

 
Blogger BJ said...

hefurðu séð mig negla nagla... Mar.... rooosa naggli mar...

10:08 f.h.

 
Blogger BJ said...

.....en umfram allt - þrifalegur.

10:08 f.h.

 
Blogger Darri said...

Djös fagmaður ertu maður.

Rooosa jakki

10:42 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home